Flýtilyklar
NaNa er Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir
Guðbjörg Jóna eða listakonan NaNa eins og hún kallar sig hefur stundað handavinnu alla sína tíð. Þeir sem þekkja hana muna hana varla öðruvísi en með prjóna á lofti eða að föndra við ýmislegt annað. Nú hins vegar hefur vinna með leður, skinn og roð átt hug hennar allan og útbýr hún veski, armbönd og belti úr þessu hráefni svo nokkuð sé nefnt.
Nýjustu fréttir
-
NaNa á markaði við Kaffi Kjós
Almennt - þriðjudagur 22.nóv.11 19:40 - Lestrar 77 - Athugasemdir (0)Að vanda verður handverksmarkaður í Félagsgarði í Kjós 3. desember n.k. NaNa sér sér ekki fært að vera þar sökum anna, en þeir sem hafa áhuga á að skoða vörurnar hennar þennan dag, geta farið á handverkamarkað sem er á Bjarteyjasandi í Hvalfirði.
-
Hvar verður NaNa í jólasölunni
Almennt - sunnudagur 20.nóv.11 16:59 - Lestrar 83 - Athugasemdir (0)Jæja, þá styttist í jólin og jólahúsin koma innan nokkurra daga fyrir utan Fjörð í Hafnarfirði. NaNa verður í Firði flesta dagana sem þau eru. Einnig verða dætur hennar fjórar helgar á Elliðavatnsmarkaðinum að selja vörurnar fyrir NöNu í littlu húsunum við gamla Elliðavarnsbæinn. Eins og þið munið eflaust frá fyrri markaðsdögum er margt á döfinni þar laugardaga og sunnudaga frá kl. 11:00 til kl. 17:00. M.a koma jólasveinar og skemmta börnunum, einnig er hægt að fá sér góða göngu og kakó og vöfflur með rjóma á eftir. Svo er ýmislegt sem hægt er að kaupa til jólanna, m.a. jólatré og allskonar fallega hluti. Nú NaNa er einnig fimmtudaga í Firði frá kl. 10:00 til kl. 17:00 og föstudaga í Mjódd frá kl. 10:00 til kl. 17:00. Síðustu 10 dagana, koma barnabörn NöNu henni til hjálpar og verða í Mjódd og Firði að selja. Ekkert mál er að hringja í NöNu og fá nánari skýringar ef einhvað er óljóst. Hlökkum til að hitta ykkur.
-
NaNa er á fimmtudögum í Firði og föstudögum í Mjódd
Almennt - laugardagur 29.okt.11 18:26 - Lestrar 84 - Athugasemdir (0)NaNa er á fimmtudögum í Firði og föstudögum í Mjódd og verður þannig fram að jólum. Einnig verður hún laugardaginn 5. nóvember á handverksmarkaði á Hvolsvöllum frá kl. 10:00 til kl. 18:00.
-
NaNa í Firði
Almennt - þriðjudagur 18.okt.11 20:58 - Lestrar 165 - Athugasemdir (7)Þá byrja NaNa í Firði í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. október og verður þar alla fimmtudaga frá kl: 10:00 til kl. 17:30. Nú styttist til jóla og aldrei of fljótt að huga að jólagjöfum.




